Pizzan heimsendir

Skilmálar gjafaleiks

Síðast uppfært: 28. október 2026

Sá sem er með flest stig á stigatöflunni í Pizzan heimsendir þegar gjafaleiknum lýkur fær 50.000 kr. inneign hjá Pizzunni. Með því að skrá þig á stigatöfluna samþykkir þú þessa skilmála.

1.Hver stendur fyrir leiknum

Pizzan ehf., kt. 681016-1200, stendur fyrir gjafaleiknum. KIWI ehf., kt. 681116-2300, gerði leikinn og rekur hann fyrir hönd Pizzunnar. Ekki þarf að kaupa neitt til að taka þátt.

2.Tímabil

Gjafaleikurinn stendur til kl. 23:59 sunnudaginn 1. nóvember 2026. Árangur sem næst eftir það telur ekki.

3.Þátttaka

Þú spilar leikinn og kemur pizzu á leiðarenda. Svo skráir þú þig á stigatöfluna með nafni, netfangi og haki við að Pizzan megi senda þér tölvupóst. Nafnið birtist á stigatöflunni en netfangið hvergi. Þú mátt spila eins oft og þú vilt og besta sendingin þín gildir.

4.Hver vinnur

Vinningshafi er sá sem er með flest stig á stigatöflunni þegar gjafaleiknum lýkur. Stig fást meðal annars fyrir pizzur sem skila sér, hita þeirra við afhendingu, sneiðar, chili og zombies.

Ef fleiri en einn eru jafnir með flest stig er dregið af handahófi á milli þeirra. Pizzan getur ógilt árangur sem næst með svindli og þá fer vinningurinn til þess sem er næstur.

5.Vinningurinn

Vinningurinn er 50.000 kr. inneign hjá Pizzunni. Ekki er hægt að skipta honum fyrir peninga.

Haft verður samband við vinningshafa í tölvupósti innan 72 klukkustunda frá því að gjafaleiknum lýkur. Vinningshafi hefur 72 klukkustundir til að svara. Annars fer vinningurinn til þess sem er næstur á stigatöflunni.

6.Persónuupplýsingar og fyrirspurnir

Um meðferð netfanga og annarra upplýsinga er fjallað á síðunni Persónuvernd. Fyrirspurnir um gjafaleikinn má senda á sverrir@kiwi.is.